Hvað er Avatar®?
Avatar er öflugasta og hreinskiptasti ferli til sjálfsþroska sem völ er á. Það byggir á röð æfinga og upplifana sem hjálpa þér til að endurnýja tilfinningu þína fyrir því hver þú ert og samhæfa meðvitund þína því sem þú vilt öðlast. Þú upplifir innsýn í líf þitt og opinberun þegar þú uppgötvar hver þú ert.
Avatar er níu daga námskeið í sjálfsefli sem kennt er af alheimsneti Avatarmeistara. Fleiri en
100.000 einstaklingar hafa útskrifast í 67 löndum og njóta þess ávinnings sem Avatar veitir þeim.*
*janúar 2007
- Vilt þú losna við þætti sem draga úr gleði þinni?
- Vilt þú samræma viðhorf þín og markmið?
- Vilt þú öðlast aukna vissu um getu þína til að skapa líf þitt?
- Vilt þú upplifa hærra, vitrara og friðsamara sjálf?
- Vilt þú rísa upp yfir hörmungar heimsins og sjá þær í réttu ljósi?
- Vilt þú upplifa það stig meðvitundar sem venjulega er kallað uppljómun?
- Þá er Avatar fyrir þig.
Það sem gera þarf á þessari plánetu.
Auka meðvitund okkar og minna á að í eðli okkar erum við friðsamar og friðelskandi verur. Auka samkennd og samvinnu á jörðinni.
Ef þú skytir ör af boga, stöðvaðir flug hennar og kíktir eftir henni sæir þú hvert hún stefnir. Ef þú stöðvaðir lífið á flugi og kíktir eftir því, sæir þú að það stefnir í átt til upplýstrar alheimsmenningar.
Von seinni kynslóða er sá möguleiki sem við höfum til að vekja í okkur þá meðvitund sem er í auknum mæli skynsöm og metur visku.
Sérhver manneskja sem verður Avatar breytir sameiginlegri meðvitund okkar í átt að auknu umburðarlyndi og skilningi. Þegar þú hjálpar þér með Avatar þá hjálpar þú einnig öllum öðrum. Allir njóta góðs af Avatar.
Horfðu fram á veginn og fagnaðu verðandi dögun upplýstrar alheimsmenningar.
Avatar®, Resurfacing® og Star´s Edge International® eru skrásett merki Star´s Edge, Inc. Öll réttindi áskilin.
|