Rit og greinar

SJÖ STOÐIR UPPLÝSTRAR TILVERU
Eftir Harry Palmer 

Sjö stoðir upplýstrar tilveru,
byggir á sjö Avatar® stutt-námskeiðum sem henta vel til sjálfsnáms. 
       Þau eru: 
    Að stjórna athyglinni 
  –  Viðhorfastjórn
    Grunnnám í ákveðni
   Að skapa skilgreiningu
  –  Fyrirgefningarferlið
    Sjálfsheiðarleiki
    Lífsstefnan mörkuð

Stutt-námskeiðin gefa innsýn í Avatarfræðin og eru afar öflug fyrir þá sem vilja kanna eigin tilveru, auka lífsgæði, lífsgleði og samkennd og ná betri tökum á að skapa það líf sem þeir vilja.

Bls. fjöldi: 138
Útgefandi: Andakt - sími 897-7258
Verð hjá útgefanda: 2.500 kr.



AFTUR UPP Á YFIRBORÐIÐ
Eftir Harry Palmer


Aftur upp á yfirborðið, aðferðir til könnunar á meðvitundinni, er afar öflug vinnubók til sjálfsþroska sem hjálpar þér til að aftengjast gömlum sköpunum og vaxa aftur til hreinnar vitundar.
Árangurinn er aukin innsýn í gang lífsins eða hvers vegna það gengur ekki sem skyldi.
Aftur upp á yfirborðið er kennslubók í fyrsta hluta Avatar® og leiðsögubók fyrir könnuði sem ferðast út fyrir venjubundna meðvitund.

Bls. fjöldi: 128
Útgefandi: Andakt - sími  897-7258
Verð hjá útgefanda: 2.400 kr.



SKAPAÐU LÍF ÞITT, upphaf og þróun Avatar.
Eftir Harry Palmer

Hefur þú fengið nóg af því að láta ytri aðstæður stýra lífi þínu, vera undir áhrifum brenglaðra fjölskyldutengsla, meðvirkra sambanda eða kvöldfréttanna? Finnst þér kannski að gæfa þín sé víðs fjarri?

Í SKAPAÐU LÍF ÞITT vísar Harry Palmer okkur leiðina út.

Í sögunni um grundvöll uppljómunar og leitina að betri leið segir Harry okkur frá fortíð sinni á hippaárunum og samskiptum sínum við skólastofnanir. Hann lýsir einnig könnun sinni á viðhorfum þeirra sem talið var að hefðu svörin og eigin rannsóknum á uppbyggingu meðvitundarinnar.
Tímamót urðu í rannsóknum Harrys þegar hann fann aðferð sem sýndi fram á að það sem við upplifum er mótað af okkar eigin meðvitund, viðhorfum okkar, en ekki öfugt. Í framhaldinu þróaði hann níu daga námskeið sem hann kallar Avatar. Með Avatar lærum við að móta eigin veruleika og hvernig við getum breytt viðhorfum okkar til að skapa næsta augnablik. . . og það næsta.
Það segir Harry að sé listin að skapa eigið líf.

Bls. fjöldi: 128
Útgefandi: Andakt - sími 897-7258
Verð hjá útgefanda: 2.600 kr.


Avatar í viðskiptalífi 
Smelltu hér til að skoða



Avatar í uppeldi og skóla
Smelltu hér til að skoða



Viðtal við Harry Palmer, höfund Avatarefnisins
Smelltu hér til að skoða greinina



Avatarnámskeiðin, stutt yfirlit
Smelltu hér til að skoða greinina



Hugsanir eru englar, eftir Harry Palmer
Smelltu hér til að skoða greinina



Avatar®, Resurfacing® og Star´s Edge International® eru skrásett merki Star´s Edge, Inc.
Öll réttindi áskilin.