Avatar® er röð öflugra og fljótvirkra æfinga og hugmyndafræði sem byggir á þeim einfalda sannleika að
þau viðhorf sem þú hefur, skapa eða laða að sér þá atburði og það ástand sem þú kallar líf þitt.
Markmið námsins er að aðstoða þig við að kanna eigin viðhorf og afhenda þér verkfæri sem duga til
að breyta því sem þú vilt breyta. Avatar opnar dyr að uppbyggingu eigin meðvitundar.
Avatar er viðhorfastjórn. Þú getur notað það til þess að stjórna þeim viðhorfum sem stýra lífsmynstri þínu.
Viðhorfin þín eru sá öflugi hvati sem stýrir tilveru þinni. Þau ákveða hvað þú upplifir og hvernig;
þau hafa áhrif á hugsanir þínar, væntingar og gerðir; þau móta persónuleikann . . .
þau ákveða hvernig þér tekst til í því sem þú gerir og hvernig aðrir sjá þig og koma fram við þig.
Hvernig er Avatar öðruvísi en . . . ?
Frekar en að skipta gömlum viðhorfum út og fá ný í staðinn vekur Avatar upp í þér eðlislægan eiginleika
sem þú hefur bæði til þess að skapa og hætta að skapa.
Þannig getur þú endurbætt líf þitt samkvæmt þeim forskriftum sem þú velur.
Avatar®, Resurfacing® og Star´s Edge International® eru skrásett merki Star´s Edge, Inc. Öll réttindi áskilin.
|
|